Lífið er ævintýri ef þú bara vilt það!! :)

Ég er villt eins og svartur hrafn, en góð eins og engill. Ég er svartur engill.

18.03.2008 21:18:47 / badaboom

Nenni þessu ekki...

Kannski er maður bara orðin gamall en ég hef ekki nennt þessu bloggstandi lengi.. maður hefur nóg annað við tímann að gera. Það tekur á að hugsa um 20 börn allan daginn og fara svo aðra hvora helgi að hugsa um yndislega fullorðna einstaklinga sem þurfa á manni að halda. Svo fer mikil orka í að halda heimili eins og allir sem eiga heimili ættu að vita... verð að viðurkenna að maður verður dálítið þreyttur á því svona til lengdar... ég hef reyndar heppnina með mér þegar kallinn er í landi því þá þarf ég bara að hugsa um þvottinn... hann sér um rest.;)
Hvað er svo á döfinni?? Jú, haldið ekki að það sé komin kaka í ofninn... :):) Mín er bara byrjuð að tútna út og mun halda því áfram næstu 5  mánuði... þannig að það er nóg að gera á næstunni.... mæðraskoðanir,sónar, meðgöngusund svo þarf maður að fara að finna sér stærra húsnæði því að það gengur ekki að hafa 3 stykki börn í 2 herbergja íbúð. Það er gaman að fjölga mannkyninu og hér ríkir mikil gleði og tilhlökkun eftir nýja fjölskyldumeðliminum. Ég kveð í bili :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 00:09:14 / badaboom

aspartam!!!

Fann þessa síðu og þetta er virkilega umhugsunarvert!!! Er verið að eitra fyrir manni? Eru mörg okkar kannski mikið veik út af einhverju eiturefnum sem einhver stórfyrirtæki eru að græða á? Já, ég er að sjá það betur og betur að GRÆÐGIN ER AÐ FARA MEÐ HEIMINN!!!!

 

http://craniosacral.is/page50/page50.html


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 23:31:14 / badaboom

Guð og menn....

Anne Graham, dóttir Billy Graham, var í viðtali í morgunþætti Jane

Clayson í sjónvarpi í Bandaríkjunum stuttu eftir hryðjuverkaárásina

á World Trade Center. Jane Clayson spurði hana. "Hvernig gat Guð

Leyft þessu að gerast?" Og Anne Graham svaraði þessu á einstaklega

djúpan og skilningsríkan hátt...;

"Ég trúi því að Guð sé virkilega sorgmæddur yfir þessu, alveg eins

Og við erum, en í mörg ár höfum við verið að segja Guði að koma sér

út úr skólum okkar, að koma sér út úr ríkisstjórnum okkar og að koma

sér út úr lífi okkar. Og þar sem hann er "heiðursmaður" þá trúi ég

því að hann hafi hægt og hljóðlega stígið til hliðar. Hvernig getum

við ætlast til þess að Guð gefi okkur blessun sína og vernd ef við

Krefjumst þess að hann láti okkur í friði? " Í ljósi liðinna

atburða... hryðjuverkaárása, skotárása í skólum o.s.frv...

Ég held að þetta hafi allt byrjað þegar Madeline Murray O ' Hare (

Sem var myrt, lík hennar fannst fyrir stuttu ) kvartaði yfir bæn í

skólum okkar, og við sögðum : "Allt í lagi." Síðan sagði einhver að

það væri betra að sleppa því að lesa Biblíuna í skólum. Biblíuna sem

Segir að þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki stela, og elskaðu

náunga þinn eins og sjálfan þig. Og við sögðum "Allt í lagi."

 

 

Síðan sagði einhver að kennarar og skólastjórar ættu ekki að aga

börnin okkar þegar þau haga sér illa. Og skólayfirvöld sögðu : "

Enginn starfsmaður skólans ætti að snerta nemendur þegar þeir haga

sér illa vegna þess að við viljum ekki slæmt umtal, og við viljum

Vissulega ekki verða lögsótt. " ( Það er stór munur á ögun og

Snertingu barnsmiðum, löðrungi, niðurlægingu, spörkum o.s.frv. ) Og

við sögðum : "Allt í lagi."

Síðan sagði einhver mikilsvirtur ráðamaður: " Það skiptir ekki málið

hvað við gerum í okkar einkalífi svo framalega sem við vinnum

Vinnuna okkar. Og við samþykktum þetta og sögðum: " Það skiptir ekki

máli hvað nokkur annar, þar á meðal forsetinn, gerir í einkalífi

sínu á meðan ég hef vinnu og efnahagslífið er gott. Og síðan sagði

skemmtanaiðnaðurinn: "Búum til sjónvarpsþætti og kvikmyndir sem

stuðla að guðlasti ( ljótu orðbragði ), ofbeldi og óleyfilegu

kynlífi. Og gerum tónlist sem hvetur til nauðgana,

Eyturlyfjanotkunar, morða, sjálfsmorða og djöfladýrkunar. Og við

sögðum : "Þetta er bara skemmtun, þetta hefur engin slæm áhrif, og

Enginn tekur þessu hvort sem er alvarlega, svo gerið bara eins og

þið viljið."

Og nú spyrjum við okkur hvers vegna börnin okkar hafa

Enga samvisku, og hvers vegna þau þekkja ekki muninn á réttu og

röngu, og hvers vegna þeim finnst ekkert að því að myrða ókunnuga,

skólafélaga sína, og sig sjálf.

Ef við hugsum málið nógu vel og lengi, þá getum við eflaust áttað okkur á

stöðunni. Ég held að þetta hafi mikið að gera með að við "UPPSKERUM EINS OG

VIÐ SÁUM."

"Elsku Guð, hvers vegna hjálpaðir þú ekki litlu stelpunni sem var

Myrt í skólastofunni sinni? " Einlægur og áhyggjufullur nemandi....

OG SVARIÐ: "Kæri einlægi og áhyggjufulli nemandi, mér er ekki hleypt

Inn í skólana. " Yðar einlægur, Guð

Skrítið hvað það er einfalt fyrir fólki að gera lítið út Guði og

vera síðan hissa á því að heimurinn skuli vera á leið til Helvítis.

skrítið að við skulum trúa því sem stendur í dagblöðum, en við

efumst um það sem stendur í Biblíunni.

Skrítið hvernig allir vilja komast til himna, svo framalega að þeir

þurfi ekki að trúa, hugsa, segja, eða gera neitt sem Biblían segir.

Skrítið hvernig sumir geta sagt: "Ég trúi á Guð" en samt fylgt

Satan, (sem "trúir" að vísu líka á Guð ).

Skrítið hvað við erum fljót að dæma, en viljum sjálf ekki vera dæmd.

Skrítið hvernig þú getur sent þúsund brandara í tölvupósti og þeir

bregðast um eins og eldur í sínu, en þegar þú ferð að senda

tölvupóst þarsem talað er um Drottinn, þá hugsar fólk sig tvisvar um

áður en það sendir hann áfram.

Skrítið hvernig klúr, ósæmilegur, óheflaður og ruddalegur póstur

ferðast frjáls um netheiminn, en opinber umræða um Guð er þögguð

niður í skólum og vinnustöðum.

Skrítið hvernig einhver getur verið svo brennandi fyrir Guði á

Sunnudegi, en verið ósýnilegur kristinn einstaklegur það sem eftir

lifir vikunnar.

Hlærðu?

Skrítið hvernig þú ferð að framsenda þennan póst, þá sendir þú hann

ekki til margra í netfangabókinni þinni vegna þess að þú ert ekki

viss um hverju þeir trúa, eða hvað þeir munu halda um þig fyrir að

senda sér þennan póst. Skrítið hvernig ég get haft meiri áhyggjur

hvað öðru fólki fynnst um mig en hvað Guði finnst um mig.

Hefur þetta fengið þig til að hugsa?

Ef þér fynnst það þess virði, sendu þennan póst áfram. Ef ekki,

henntu honum þá... Enginn mun vita hvað þú gerðir. En ef þú hendir

þessum hugsunum frá þer, sittu þá ekki hjá og kvartaðu ekki yfir því

hversu slæmum málum heimurinn er !


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 21:31:24 / badaboom

Langt síðan...

Já, það er orðið dálítið langt síðan ég hef bloggað en ég verð að viðurkenna það að ég hef hreinlega ekki nennt því.

 

Það er svo sem ekkert mikið að frétta. Ég vinn bara og vinn, fer á fundi og svo var ég að byrja á andlegu námskeiði með Guðrúnu og Jóhönnu þar sem að við reynum að finna okkar innri ráðgjafa. Roslega skemmtilegt en jafnframt skrítið námskeið. :) Unnustinn er alltaf á sjónum en það styttist í hann og þá mun ég hafa hann hjá mér í heilar 3 vikur!!!! :) Get ekki beðið en ég hef varla séð hann í 2 mánuði. Svona er að eiga sjómann, en það skemmtilegasta við það er hvað ástin blómstrar alltaf í hvert skipti þegar hann kemur í land. Ég fæ allavega ekki leið, hahahaha.

Ég ætlaði alltaf að skrifa hvernig trúlofunin okkar var. Þetta var allavega rosalega rómantískt, alveg eins og í bíómynd. Hann bauð mér út að borða og svo fórum við í göngutúr í alveg himneskum garði. Það var alveg ótrúlega mikið af trjám, alveg risavöxnum og svo var á við hliðina á göngustígnum. Við stoppuðum svo við í gömlu óperuhúsi þar sem hægt var að ganga inn í og þar fór hann á hnén og bað mín. Ég grét úr gleði.... hann gerir mig svo hamingjusama! :)

Ég á fullt af myndum sem ég ætla að setja hérna inn við tækifæri. Annars kveð ég í bili.... ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 17:12:05 / badaboom

jæja....

Jæja þá er UNNUSTINN farinn á sjóinn og lífið orðið hálfdapurlegt. Það er búið að vera yndislegt sumarið en einhvernveginn finnst mér það bara búið núna finnst að hann er ekki hérna. En ég ætla nú ekkert að vera að tala meira um það. Ég er loksins komið með netið heima hjá mér en það hefur ekki gerst síðan ég bjó í Hraunbænum með Kristínu og Hlín. Árið 2003 held ég..... við erum að tala um 4 ár. Vá hvað tíminn er eitthvað fljótur að líða.... held meira að segja að ég sé að fá nokkrar hrukkur!! En þó að netið sé komið þá er tölvan ekki enn komin í lag en vonandi gerist það í kvöld svo að þá get ég skrifað allt um ferðina til Lúx!!! Þangað til segi ég bara bless bless ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 11:04:50 / badaboom

TRùLOFUD!!!!

Sagan kemur seinna tegar vid komum heim fra LUX!!!! ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 23:36:00 / badaboom

Hlakka svo til...

Já Skúli minn er að koma eftir ca. klukkutíma og ég get ekki beðið... ég er búin að vera ónýtt manneskju seinustu vikur því ég hef varla séð strákana mína.... Skúli fór út á sjó og svo í sumarbústað og þaðan beint út... svo er Gestur búinn að vera næstum því í mánuð.... og mér finnst það vera margir mánuðir... sérstaklega af því að ég veit að við erum bæði að fara í frí... maður telur niður dagana. Annars er allt ágætt að frétta, ég er enn með bakverki og er alveg að verða vitlaus á þessu. Vona bara að ég verði skárri áður en við förum út til Lúx því að ég nenni ekki að vera emjandi allan tímann. Lífið er bara yndislegt og verður enn betra þegar ég fæ kærastann minn og soninn heim!! :):) Ég kveð í bili Sigurrós :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 14:26:15 / badaboom

Það nýjasta....

Alltaf að vinna, íbúðin orðin rosa kósí, fer út til Lúx í 2 vikur með Gesti að heimsækja mömmu hans, Skúli er á leið til Danmerkur eftir 2 tíma...... hann fór líka á sjóinn í  viku með Friðfinni og Gesti, var svo í sumarbústað með afa sínum um helgina..... Kristín útskrifuð sem byggingarverkfræðingur, ég er alveg rosalega stolt af henni, Guðrún að elda ofaní vinnukalla upp á fjöllum, það er dugnaður í minni!!! :) Segi ekki meir í bili Gleðilegan þjóðhátíðardag!!! :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 12:26:50 / badaboom

......

Jæja, hef ekki haft tíma til að skrifa en það sem búið er að gerast í dag er.... flutningar í Garðabæ, ný húsgögn, kallinn kominn og farinn aftur á sjóinn, bakið klikkaði, berkjubólga, vinnan..... og hellingur sem ég man ekki eftir..... kveð í bili Hrefna

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 22:12:20 / badaboom

Helgin....

Veit ekkert hvað ég á að skrifa... er tóm akkúrat núna. Búin að vera með magakveisu í dag í vinnunni og er að þrjóskast við núna..... hef ekki tíma í að vera veik, allt of mikið að gerast í mínu lífi í dag!!! Hlakka til að takast á við morgundaginn og fá að njóta þess að upplifa gleði og hamingju!!! Annars segi ég bara bless í bili og vonandi líður fólki vel þarna úti!!1 Kveðja Hrefna skvís


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 15:53:42 / badaboom

Lífið er yndislegt... lalalala....

Já það er sko gaman að vera ég í dag!! Ég held að það sé alveg rétt sem sagt er... ef þú gerir góða hluti þá gerast góðir hlutir fyrir þig!!! Þannig að ég ætla að halda áfram að gera góða hluti... ég verð svona góðgerðarfíkill, hehe. Núna er ég á fullu að leita að íbúð, og trúið mér, eftir að maður er búin að vera svona nánast heimilislaus í næstum því ár þá er ekkert smágaman að vera allt í einu að eignast heimili. Ég er full af þakklæti, það er kannski það besta við það að ég var á slæmum stað í lífinu. Ég veit virkilega vel hvað þakklæti er. Það eru svo margir sem gera sér ekki grein fyrir hvað þeir hafa það gott. Þeir vilja alltaf meira og meira og eru aldrei ánægðir. En ég er sko ánægð, ég er lifandi, heilbrigð á sál og líkama og ástfangin upp fyrir haus. Ég á heilbrigt barn og æðislegan kærasta og hann á yndislegan son.... lífið er algjörlega að fara upp á við og ég segi það einu sinni en, ég er alveg virkilega ÞAKKLÁT!!! Svo kveð ég bara í bili og vona að þeir sem lesið þetta líði vel yfir páskana.

Páskakveðja Hrefna hin hamingjusama!!! :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 19:26:10 / badaboom

Smá breytt plan....

Lífið virkar á stórbrotinn hátt..... Ég get ekki lengur verið með gremju út í karlmenn þar sem að ég hef nælt mér í einn slíkan og er núna svífandi um á bleiku skýi!!! :) Þannig að ég er ekki að fara að búa með vinkonu minni heldur ætla ég að fara að búa með kallinum mínum!!! :) Loksins loksins.... það hlaut að koma að því!!!! :)

ætla ekki að hafa það lengra í bili en kem með fleiri fréttir innan tíðar!!

Kveðja Hrefna :lol:


» 10 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 02:06:56 / badaboom

Jæja gott fólk....

Jæja loksins loksins er ég að fara að flytja. Ég á alveg yndislega vinkonu sem ég er að fara að búa með og hlakkar mig alveg rosalega mikið til. Mun ég flytja í Grafarholtið rétt hjá mömmu og svo er systir mín að fara að flytja í Grafarholtið líka þannig að þetta á örugglega eftir að vera yndislegt. Eina sem mig vantar núna er bíll... einhvern ódýran... þannig að ef einhver veit um einhvern fyrir mig endilega látið mig vita.... annars kveð ég bara í bili... bless bless.... Hrefna :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 22:13:17 / badaboom

Jæja gremjukastið er búið!!

Já það gengur ekkert að eyða lífinu í neikvæðni og gremju og því ákvað ég að halda bara áfram mínu striki og sjá það góða í öllu og öllum... og mér líður bara mjög vel. Það er brjálæði að gera hjá mér. Ég er í ræktinni, byrjuð að vinna á sambýli aðra hvora helgi og svo eru það fundirnir, fara á kaffihús með vinum, sinna drengnum mínum og svo er ég að byrja að sponsa!! Fjúff... væri fínt að hafa aðeins meiri tíma en þetta tekst ef ég skipulegg mig vel. Ég held að ég þurfi í fyrsta skipti á ævinni að fá mér fílófax!! Það væri ágætt svo þetta fari ekki allt í eina klessu.

Annars hafið það gott þarna úti... ég er farin að spila trivial, spurningakeppnin er á morgun!! :)

Bless bless Hrefna busy:!:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan